
Dverghamstrar eru algeng gæludýr um allan heim.
Þeir geta lifað 1/2 -3 ár mest .Eru þetta skemmtileg gæludýr með mikin persónuleika .Algengustu sjúkdómar hamstra eru augnsýkingar,
maurar og lýs, kvef og lungnasýkingar. Hamstrar éta nýtt gras, hey, hrátt grænmeti og ávexti. Melónur og sellerí þykja hömstrum
góðir aukabitar. Auk þess þurfa þeir korn á hverjum degi. Þeir þurfa að hafa fóður allan sólarhringinn og alltaf skal haft
ferskt vatn hjá þeim. Til eru margar tegundir af hömstrum, en algengustu tegundirnar af dverghömstum eru Campbell's,
Rúsneskur winter white ,Roborovski og Safír dverghamstrar . kínveskir ,
Hamstrar lifa villtir í Evrópu og Asíu, við ár
þar sem þeir grafa sér göng. Hamstrar sofa á daginn en hreyfa sig á nóttunni og þarf að taka tillit til þess þegar þeim er
valinn staður á heimili. Best er að búrin séu sem stærst. Dverghamstrar
Kynþroski 4-5 vikna Hentugir til ræktunar er þegar þeir eru tilbúnir. Ástæðan fyrir því að hamstrar eru iðnastir á næturnar, hvort heldur er við leik eða næringaröflun, er
sú að þeir eru svokölluð næturdýr eins og flest önnur nagdýr. Næturdýr velja, eins og nafnið gefur til kynna, nóttina
fram yfir daginn til athafna.
Ástæðunnar fyrir þessu atferli er eflaust að leita í langri þróunarsögu nagdýra þar sem
sterkt náttúrulegt val hefur verið fyrir því að dýrin athafni sig á næturnar. Þannig er fæðunám, mökun eða hvers kyns leikur
öruggari í skjóli náttmyrkursins þar sem minni líkur eru á að rándýr á borð við ýmsa ránfugla komi auga á næturdýrin og hremmi
þau.
Þetta næturatferli er alþekkt hjá músum og rottum í Evrópu, meðal annars hér á landi. Rannsóknir hafa sýnt að
þessi næturvirkni hamstra er svo rótgróin að tilraunahamstrar sýna sömu dægurvirkni þó að þeir séu hafðir í herbergi eða búri
þar sem birta er alltaf hin sama, það er að segja að þeir eru eftir sem áður fjörugir á næturnar en sofa á daginn.
Það
sem verkar svona sterkt á hamstra hefur verið nefnt líkamsklukka eða innri klukka (e. internal clock). Þessi klukka getur
bæði haft áhrif á dægurbundið og árstíðabundið atferli. Á undanförnum árum hefur athygli líffræðinga beinst í vaxandi mæli
að þessu fyrirbæri. Sérstaklega á það við um rannsóknir á fari hinna ýmsu hópa dýra, svo sem fugla, spendýra og jafnvel skordýra,
sem og öðrum árstíðabundnum atferlisþáttum dýra.
Hver er meðgöngutími hamstra?
Til hamstra teljast 18 tegundir spendýra af ættbálki nagdýra (Rodentia) og þær hafa ekki allar sama
meðgöngutíma.
hamstur er ein vinsælasta sem gæludýr. Ef spyrjandi á við hana er meðgöngutími hennar um 20
dagar. hamstrar eiga vanalega fimm til sjö unga sem fæðast blindir og hárlausir.
Aðrar tegundir hamstra eins og evrópski
hamsturinn og dverghamstur hafa örlítið lengri meðgöngutíma eða um 20 daga.
Derghamsturinn
er agnarsmár,
aðeins um 8 cm á lengd. Andstæt hamstrinum er hann hópdýr og líður bezt með öðrum hamstri, sama kyns eða af gagnstæðu kyni.
Vandamál er þó fylgjandi því að hafa tvo dverghamstra saman af sama kyni þeim geta komið illa saman, að hafa par getur verið
erfit því kerlingin getur gotið á 3ja vikna fresti!
Hamstrar
eru sérstaklega meðfærilegir og eiga það til
að bíta en það hægt að venja þá af því. Sé hamsturinn gæfur, er í lagi að taka hann upp og halda á honum í lófanum. Gæta verður
þó þess að hann detti ekki niður, því hamstrar eru snöggir í snúningum og fallið getur verið hátt fyrir lítið dýr og afleiðingarnar
ófyrirsjáanlegar. Sé hamsturinn hins vegar mótfallinn allri handfjötlun, verður að grípa hann í hnakkaskinnið með þumal- og
vísifingri.
Mörgum eigendum hamstra bregður í brún sjái þeir hamsturinn éta eigin saur, en það er þeim eiginlegt og
bætir nýtinguna á B- og K-vítamínum.
Nokkrar staðreyndir Stærð 8- (10 cm).
Kvendýr
karldýr Oft Stæri
Líftími: 1 - 3 ár
Líkamshiti 37 - 38°C
Púls 250 - 500/mín.
Gangferill 4
dagar
Meðganga 18-20
dagar
Fjöldi unga í goti: 5 - 9
Augu opnast: 15 daga
Á spena: 20 - 25 daga
Kynþroskaaldur: Kvendýr 4 - 6 vikna, karldýr 6 - 8 vikna
Dagleg vatnsþörf: 10 - 15 ml á dag (fullorðin
dýr).
Dagleg fóðurþörf: 15-20 g á dag (fullorðin dýr).
Aðbúnaður Nauðsynlegt er
að hamstrar hafi eitthvað fyrir stafni og sé séð fyrir afþreyingu í búrinu, t.d. hlaupahjóli, rörgöngum og trjágreinum til
að klifra í og naga. Einnig er mikilvægt að hafa svefnkofa (15cm x 15cm x 10 cm) í búrinu með opi (u.þ.b. 5 x 5 cm), og t.d.
fínt hey sem þeir draga í húsið svo þeir geti falið sig frá umheiminum á daginn.
Hitastig: Kjörhiti
hamstra er á bilinu 18º og 26ºC. Sé hitastig á bilinu 5° - 15°C hægist á líkamsstarfsemi hamstranna, en fari hitinn niður
fyrir 5°C leggjast þeir í dvala, og er þá hjartsláttur og öndun er vart merkjanleg.
Búr
Stærð búra
(lágmarksstærð): Grunnflötur 180cm2 og hæð 35 cm.
Búrin verða að standast útrásarþörf hamstranna því þeir naga allt
í sundur sem hægt er. Búr fyrir dverghamstra verða að vera með mjög þéttum möskvum því þeir smjúga alls staðar út, reyndar
er bezt að hafa þá í heilum plastbúrum. Í búrinu verður að vera gott pláss fyrir afþreyingu, rör (pappahólkarnir undan eldhúsrúllunum
eru tilvaldir til afþreyingar) og svefnhúsið þeirra.
Fóður , þar af 16-24% hráprótín, 60-65 %
kolvetni og 4-5 % fita. Á markaðnum er til sérstakt hamstrafóður sem uppfyllir daglega fóðurþörf hamstra (músa- og rottufóður
hentar einnig hömstrum). En auk tilbúna fóðursins er mikilvægt að gefa hömstrum ávexti og grænmeti, svo sem kál, gulrætur,
epli, perur og ber. Skemmt fóður og snöggar fóðurbreytingar geta valdið litlum hamstri alvarlegum meltingartruflunum sem geta
jafnvel leitt hann til dauða. Því er mikilvægt að fylgjast vel með fóðurbyrgðum hamstursins sem úldna eða skemmist auðveldlega
eins og t.d. grænmeti og ávöxtum og fjarlægja þær reglulega. Hamsturinn verður alltaf að hafa aðgang að fersku vatni (10 –
15 ml. á dag) og því er bezt að endurnýja vatnið daglega.
Undaneldi hamstrar verða fljótt kynþroska og er meðgöngutíminn
með því skemmsta sem þekkist hjá spendýrum. Hamstrakerlingar gjóta árið um kring og viðkoman getur því verið mikil. Eigi að
para hamstra, er bezt að hleypa kvendýrinu inn til karldýrsins, því kerlingin er mun grimmari en karldýrið og fylgjast náið
með þeim á meðan. Æskilegast er að þau séu saman aðeins stutta stund í einu (nokkra tíma í senn) og endurtaka heldur pörunin
aftur næsta dag. Gæta verður þess að kvendýr með unga á spena fái alhliða, vandað fóður sem inniheldur öll næringarefnin auk
grænmetis og ávaxta. Ungarnir byrja að éta fasta fæðu þegar þeir eru um viku gamlir og vatn þegar þeir eru 10 daga gamlir.
Það er því mikilvægt að þeir komist auðveldlega í vatns- og fæðuskálarnar.
Helstu sjúkdómar:
Tannslit:

|